Fréttir

 
Góður árangur í ræðukeppni á ensku

Góður árangur í ræðukeppni á ensku

Hin árlega ræðukeppni ESU (English Speaking Union of Iceland) var haldin í þriðja sinn í Háskólanum í Reykjavík sl. laugardag kl. 9:30. Menntaskóli Borgarfjarðar sendi þrjá nemendur til þátttöku í keppninni. Þeir stóðu sig með prýði en þetta er í  annað sinn sem MB sendir þátttakendur í þessa keppni og sömdu nemendur ræður sem tóku [...]

 

Aukið námsframboð við MB næsta skólaár

Næsta skólaár verður boðið upp á tvær nýjar námsleiðir við Menntaskóla Borgarfjarðar. Nemendur á félagsfræðabraut og náttúrufræðibraut geta valið íþróttasvið innan brautar til stúdentsprófs. Þá munu nemendur á náttúrufræðibraut geta valið búfræðisvið í samstarfi við starfsmenntabraut Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Nánari upplýsingar hér.

 
Glæsileg söngkeppni MB

Glæsileg söngkeppni MB

Söngkeppni Menntaskóla Borgarfjarðar fór fram miðvikudagskvöldið 8. febrúar. Sex söngatriði voru á dagskrá og var umgjörð keppninnar til fyrirmyndar. Undirleikur var ekki af verri endanum en húsband skólans sá um undirleik söngatriðanna. Það var sex manna dómnefnd sem fékk það erfiða verkefni að velja sigurlag kvöldsins – en keppnin í ár var mjög jöfn. Sigurvegari [...]

 

MB kemur mjög vel út í ytra mati

Í lok síðasta árs lét mennta- og menningamálaráðuneytið gera úttekt á starfi Menntaskóla Borgarfjarðar (MB) með það að markmiði að leggja mat á starfsemi skólans út frá þeim lögum, reglum og námsskrá sem skólinn vinnur eftir. Matskýrsla úttektaraðila kom út í lok janúar. Þar segir meðal annars að starfsemi skólans sé í góðu horfi, nemendum [...]

 

Innritun fatlaðra nemenda í framhaldsskóla haustið 2012

Innritun fatlaðra nemenda, sem óska eftir skólavist á starfsbrautum framhaldsskóla, fer fram fyrr en innritun almennt í framhaldsskóla. Innritað verður frá 30. janúar til 29. febrúar 2012. Tímamörk almennrar innritunar gilda þó fyrir þær umsóknir sem berast seinna. Umsækjendur sækja veflykil á menntagatt.is. Þegar umsækjendur hafa fengið veflykil opnast þeim aðgangur að innrituninni. Nánari leiðbeiningar [...]