30/04/2012 15:26 / no comments
Næstkomandi föstudag halda nokkrir nemendur og kennarar til borgarinnar Lissabon í Portúgal á vegum Comeniusarverkefnisins Migration and cultural influence. Ferðin er síðasti liðurinn í verkefninu en nemendur úr MB fóru síðastliðið haust til Hollands á vegum verkefnisins og fyrir um ári síðan komu rúmlega 30 gestir í heimsókn til MB. Lokapunkturinn að þessu sinni felst [...]
26/04/2012 15:20 / no comments
Um komandi helgi keppa 18 nemendur úr MB á Íslandsmeistaramótinu í samkvæmisdönsum. Við óskum nemendum okkar góðs gengis á mótinu.
16/04/2012 16:15 / no comments
Menntaskóli Borgarfjarðar auglýsir eftir aðilum sem hafa áhuga á að bjóða nemendum skólans upp á herbergi/íbúðir til leigu skólaárið 2012 – 2013. Ýmsir valkostir koma til greina. Staðsetning nálægt skólanum er mikill kostur og hóflegt verð til nemenda. Áhugasamir sendi inn upplýsingar á netfangið kolfinna@menntaborg.is fyrir 4. maí nk. Nánari upplýsingar veitir skólameistari Kolfinna Jóhannesdóttir [...]
12/04/2012 14:20 / no comments
Söngkeppni starfsbrauta var haldin 29. mars í Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Starfsbrautin okkar fór í fyrsta sinn með atriði á söngkeppnina. Stelpurnar, Angela, Elín Heiða, Hildur og Helga Björg sungu saman lagið Next to you með Justin Bieber. Þær stóðu sig frábærlega og voru Menntaskóla Borgarfjarðar til sóma.
12/04/2012 14:18 / no comments
Sendiherrar Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, heimsóttu Menntaskólann 29. mars síðastliðinn. Þeir eru á ferð um landið til að kynna samninginn fyrir öðru fólki með þroskahamlanir, í anda jafningjafræðslu undir kjörorðinu ,,Sendiherrar ekkert um okkur án okkar”. Nemendur starfsbrautar tóku á móti þeim og fengu góða kynningu á réttindum sínum. Í framhaldi af [...]