Félagsfræðabraut
Á félagsfræðabraut er megin áherslan á samfélagsgreinar og kjarnagreinar. Í samfélagsgreinum er lögð áhersla á nám til jafnréttis, lýðræðis og mannréttinda. Um er að ræða 220 eininga nám til stúdentsprófs. Námstími að jafnaði er 6 annir. Félagsfræðabraut er ætlað að veita nemendum undirbúning undir nám í mennta- félags- og hugvísindadeildum háskóla.
Lokamarkmið félagsfræðabrautar:
Að nemandi
- hafi almenna og sértæka þekkingu og færni á sviði félags-, mennta- og hugvísindagreina
- sé vel undirbúinn undir nám á félags-, mennta- og hugvísindagreina
- sé meðvitaður og virkur þátttakandi í lýðræði, mannréttindum og jafnrétti






