Náttúrufræðibraut
Markmið náttúrufræðibrautar er að búa nemendur undir nám í raunvísindum og skyldum greinum á háskólastigi. Á náttúrufræðibraut er lögð áhersla á eftirfarandi grunnþætti; læsi, sköpun og sjálfbærni. Um er að ræða 220 eininga nám til stúdentsprófs. Námstími að jafnaði er 6 annir.
Lokamarkmið náttúrufræðibrautar:
Að nemandi
- hafi almenna undirstöðuþekkingu á sviði raungreina
- hafi sértæka þekkingu á afmörkuðum sviðum raungreina
- sé vel undirbúinn fyrir nám í raunvísindum í háskóla
- þekki til og geti beitt vísindalegum vinnubrögðum við úrlausn verkefna
- sé meðvitaður um gildi sjálfbærni í víðum skilningi
- sé meðvitaður um mikilvægi heilbrigðs lífernis
- beri virðingu fyrir náttúrunni og geti tekið ábyrga afstöðu til mála sem að henni snúa
- sé læs á upplýsingar á ýmsu formi og geti nýtt sér þær við að taka gagnrýna afstöðu





