Náttúrufræðibraut – íþróttasvið

 

Á Náttúrufræðibraut – íþróttasviði er megináherslan er á íþróttafræði, íþróttagreinar og þjálfun auk kjarna á náttúrufræðibraut . Á náttúrufræðibraut er lögð áhersla á eftirfarandi grunnþætti; læsi, sköpun og sjálfbærni en íþróttsviðið leggur áherslu á heilbrigði og velferð. Um er að ræða 220 eininga nám til stúdentsprófs. Námstími að jafnaði er 6 annir. Náttúrufræðibraut með íþróttafræðisviði er ætlað að veita nemendum undirbúning undir leiðbeinendastörf hjá íþróttafélögum og frekara nám á háskólastigi í íþrótta- og heilsufræðum. Megináherslan er á íþróttafræði, íþróttagreinar og þjálfun auk kjarna á náttúrufræðibraut.

Lokamarkmið náttúrufræðibrautar með íþróttasviði:

Að nemandi

  • hafi almenna þekkingu á sviði raungreina
  • sé vel undirbúinn fyrir nám í íþrótta og heilbrigðisfræðum í háskóla
  • hafi almenna og sértæka færni á sviði líffæra- og lífeðlisfræði
  • hafi fræðilegan og verklegan undirbúning í kennslu og þjálfun íþrótta og hreyfináms fyrir börn og unglinga
  • sé meðvitaður um mikilvægi heilbrigðs lífernis

 Mat Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands á námi í framhaldsskóla

Nemandi sem lokið hefur ÍÞF-102 (ÍÞF-1A06 í nýja einingakerfinu) og tveimur einingum í íþróttagrein (ÍÞG-1X2) getur fengið nám sitt metið sem þjálfari 1 hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands. Nemandi sem lokið hefur 26 einingum (42 í nýja einingakerfinu) í íþróttagreinum, íþróttafræðum og starfsþjálfun úr framhaldsskólum getur fengið almennan hluta af þjálfarastigi 2 metinn hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands.

Mat framhaldsskóla á námi frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands

Nemandi sem lokið hefur þjálfarastigi 1 hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands getur fengið nám sitt metið sem jafngildi ÍÞF-1A06  og ÍÞG-1X2.