Innritun

 

Umsóknareyðublað má nálgast hér

Um innritun í Menntaskóla Borgarfjarðar fer samkvæmt 32. gr. laga nr. 92/2008 um framhaldsskóla og reglugerð nr. 1150/2008. Þeir sem hafa lokið grunnskólanámi, hafa hlotið jafngilda undirstöðumenntun eða hafa náð 16 ára aldri, eiga rétt á að hefja nám við Menntaskóla Borgarfjarðar. Þeir sem eiga rétt á að hefja nám í framhaldsskóla samkvæmt framangreindu eiga jafnframt rétt á því að stunda nám í framhaldsskóla til 18 ára aldurs. Nemendur með lögheimili í Borgarbyggð hafa að öðru jöfnu forgang um skólavist.

Kröfur um undirbúning fyrir innritun miðast við skólaeinkunnir við lok grunnskóla. Menntaskóli Borgarfjarðar gerir eftirfarandi kröfur um námsárangur úr grunnskóla vegna innritunar á bóknámsbrautir til stúdentsprófs.

Námsgreinar
NÁMSBRAUT íSL ENS STÆ RAUN SAMF
Félagsfræðabraut 6 6 5  5 6
Náttúrufræðibraut 6 6 6 6  5

 

Nemendur sem ekki uppfylla kröfur um námsárangur úr grunnskóla í einstökum námsgreinum gefst kostur á að taka áfanga í viðkomandi grein á almennri braut sem undirbúning fyrir nám í viðkomandi grein á stúdentsprófsbraut. Skólameistari getur heimilað nemendum sem ekki uppfylla skilyrði til innritunar að fullu að hefja nám á viðkomandi námsbraut ef telja má líklegt að þeir standist þær kröfur sem gerðar eru um námsárangur sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 1150/2008 um innritun nemenda í framhaldsskóla. Ekki eru gerðar sérstakar kröfur um skólaeinkunnir inn á almenna braut og starfsbraut.

Inntaka nemenda sem ekki hafa lokið grunnskóla

Skilyrði fyrir inntöku eru:

1. Að nemandi uppfylli þær kröfur um lágmarkseinkunnir sem getur um hér að ofan.

2. Umsögn frá grunnskóla um námslega stöðu nemandans og mat skólans, ásamt mati MB á því hvort þetta val sé raunhæfur kostur.

3. Viðtal við nemanda og foreldra.