Námsbrautir (gamalt)
Framhaldsskólabraut
Framhaldsskólabraut er tveggja ára námsbraut með möguleika fyrir nemendur að færa sig yfir á stúdentsprófsbraut að loknu fyrsta eða öðru námsári. Brautin er ætluð þeim sem ekki hafa náð nægjanlegum námsárangri að mati skóla og eftir atvikum nemanda/foreldra, til að hefja nám á stúdentsprófsbrautum. Lögð er áhersla á grunnþjálfun í kjarnafögum ásamt sjálfstyrkingu og verkefnavinnu af ýmsu tagi.
Félagsfræðabraut
Á félagsfræðabraut Menntaskóla Borgarfjarðar er megin áherslan á kjarnafög og samfélagsgreinar en 34 einingar eru í samfélagsgreinum og 33 í kjarnagreinum. Á félagsfræðabraut eru alls 28 valeiningar en nemendur þurfa að ljúka 12 af þeim. Alls ljúka nemendur stúdentsprófi með 133 einingar af félagsfræðabraut. Þriðja tungumál er spænska og skylda er að sækja tíma í samkvæmisdönsum einu sinni í viku.
Náttúrufræðibraut
Á náttúrufræðibraut Menntaskóla Borgarfjarðar er megináherslan á náttúrufræði og raungreinar, alls 32 einingar, auk kjarnagreinanna íslensku og ensku sem telja alls 22 einingar. Á náttúrufræðibraut eru alls 56 valeiningar og þurfa nemendur að ljúka 10 þeirra til að brautskrást með 133 einingar. Unnið er að nánari útfærslu á greinum innan náttúrufræðinnar og stefnt að nánu samstarfi við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri hvað það varðar, sem og samnýtingu á rannsóknaraðstöðu og þekkingarauði. Einnig er lögð áhersla á nám og kennslu í erlendum tungumálum. Þriðja tungumál er spænska og skylda er að sækja tíma í samkvæmisdönsum einu sinni í viku.
Starfsbraut
Starfsbraut er námstilboð fyrir nemendur sem ekki geta nýtt sér almennt tilboð framhaldsskóla og hafa greiningu fagaðila. Námið er bæði bóklegt og verklegt en í fæstum tilvikum metið inn á aðrar brautir skólans. Námstími er 4 ár. Meginmarkmið námsins er að gera nemendur virka þátttakendur í þjóðfélaginu og sjálfbjarga í daglegu lífi að því marki sem hverjum og einum er mögulegt. Engin brautarlýsing fylgir með í skólanámskránni þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta kennsluhætti sniðna að þörfum, áhuga og getu nemenda. Nám getur farið fram jafnt innan skóla sem utan.Unnið er samkvæmt einstaklingsmiðuðum námsáætlunum sem unnar eru í samráði við nemanda og foreldra/forráðamenn. Sjá nánar




