Skólahjúkrunarfræðingur
Menntaskóli Borgarfjarðar hefur gert samning við Heilbrigðisstofnun Vesturlands um þjónustu hjúkrunarfræðings fyrir nemendur skólans. Hjúkrunarfræðingur mun aðstoða nemendur ef upp koma vandamál er tengjast likama þeirra og sál. Hjúkrunarfræðingurinn vinnur í nánu samstarfi við skólastjórnendur, kennara og námsráðgjafa með hagsmuni nemenda að leiðarljósi.
Skólahjúkrunarfræðingur er með viðtalstíma fyrir nemendur á fimmtudögum kl. 14:00 – 15:00.
Tímapantanir í síma 432-1430
Netfang skólahjúkrunarfræðings er: iris.sigmarsdottir@hve.is





