Námsráðgjafi (gamalt)

 
Elín Kristjánsdóttir elin@menntaborg.is

Viðtalstímar: Þriðjudagur og niðvikudagur kl 08:10 – 12:10

Viðtalstíma er hægt að panta hjá skólafulltrúa í síma 433-7700

Námsráðgjafi veitir nemendum leiðsögn í persónulegum málum sem snerta námið

og skólann og eru þeim til ráðgjafar og aðstoðar við lausn vandamála sem tengjast

námi eða félagslegum þáttum skólavistarinnar. Námsráðgjafi metur hvort unnt sé að

leysa úr málum innan skólans eða hvort leita þurfi eftir sérhæfðari meðferð til

viðeigandi sérfræðinga eða stofnana. Hann kemur upplýsingum þar um til

skólameistara. Lögbundið hlutverk námsráðgjafa er m.a.:

· að skipuleggja og sjá um framkvæmd náms- og starfsfræðslu í skólanum

· annast ráðgjöf um náms- og starfsval

· að taka þátt í að skipuleggja ýmsar aðgerðir til að stuðla að betri líðan

nemenda í skólanum,

· fylgjast með námsgengi nemenda sem til hans leita eða til hans er vísað og

gera tillögur til úrbóta gerist þess þörf

· að liðsinna kennurum vegna námsvanda einstakra nemenda og vera þeim til

aðstoðar við skipulagningu og umsjón með nemendahópum

· að hafa samband við forráðamenn nemenda þegar þörf er á

· að fylgjast með nýjungum á sviði námsráðgjafar

· að taka saman skýrslu um starfsemina í lok hvers skólaárs

Námsráðgjafi er bundinn þagnarskyldu, svo og aðrir starfsmenn skólans.