Skólasókn
Reglur um skólasókn
Nemendur skulu sækja stundvíslega allar kennslustundir. Mæti nemandi of seint í kennslustund fær hann hálft fjarvistarstig, mæti nemandi meira en 10 mínútum of seint fær hann eitt fjarvistarstig.
Niðurfelling fjarvistarstiga
Heimilt er að fella niður fjarvistir vegna veikinda sem hafa verið tilkynnt.
- Nemendur þurfa að tilkynna veikindi samdægurs fyrir kl 10:00 á skrifstofu skólans. Ef nemandi er yngri en 18 ára þarf forráðamaður að tilkynna veikindi. Nemendur með langvinn veikindi eða sem þurfa tímabundið að vera fjarverandi vegna veikinda þurfa að framvísa læknisvottorði.
Heimilt er að veita leyfi:
- Vegna námsferða á vegum skólans
- Vegna starfa í stjórn Nemendafélags Menntaskóla Borgarfjarðar
- Vegna undirbúnings og þátttöku í keppni á vegum skólans, íþróttafélags eða sérsambands íþróttafélaga. Staðfesting viðkomandi félags eða sérsambands um þátttöku þarf að fylgja umsókn um leyfi.
- Vegna fráfalls náins ættingjar eða vinar.
- Vegna ófærðar eða annarra óviðráðanlegra tilvika sem nemandi eða forráðamaður staðfestir.
- Vegna rökstuddrar umsóknar um brýn erindi frá nemanda og forráðamanni ef við á.
Sækja þarf um öll leyfi til skólameistara
Meðferð og viðurlög
Skólasókn þarf að vera 85% til að nemandi eigi vísa skólavist á næst önn.
- Þegar nemandi er kominn með 11 fjarvistarstig í 4 eininga áfanga (6 f-einingar) og 8 fjarvistarstig í 2 eininga áfanga (4 f-einingar) fær hann og forráðamaður ef við á skriflega viðvörun og nemandi fer í viðtal hjá umsjónarkennara
- Þegar nemandi er kominn með 14 fjarvistarstig í 4 eininga áfanga (6 f-einingar) og 9 fjarvistarstig í 2 eininga áfanga (4 f-einingar) fer hann í viðtal hjá skólameistara eða aðstoðarskólameistara eftir atvikum.
Skólasókn í áfanga þarf að vera 85% til að nemandi hafi staðist viðkomandi áfanga.
- Fái nemandi 17 óútskýrð fjarvistastig úr tilteknum 4 eininga (6 f-eininga) áfanga er hann fallinn í áfanganum
- Fái nemandi 12 óútskýrð fjarvistastig úr tilteknum 2 eininga (4 f-eininga) áfanga er hann fallinn í áfanganum
Skólameistara er heimilt að víkja nemanda úr námi að því tilskildu að nemandi hafi fengið viðeigandi aðvaranir.
Nemandi hefur rétt til áfrýjunar til skólanefndar
Nám með frjálsri mætingu
- Nám utan skóla er almennt aðeins veitt nemum yfir 20 ára.
- Nemandi þarf að gefa greinargóðar skýringar á ástæðum þess að stunda nám utan skóla.
- Nemandi þarf að búa við sérstakar ástæður t.d. tengdum búsetu, barneignum og dagvinnu.
- Nemandi þarf að hafa staðist ákvæði skólanámskrár um námsframvindu á fyrri önn






