Tölvukerfi MB

 

Allir nemendur í 50% námi eða meira geta fengið leigðar fartölvur hjá skólanum og gera þá sérstakan samning um tölvuleigu við skólann. Í skólanum er öflugt þráðlaust net sem allir nemendur hafa aðgang að öllum stundum. Tvö önnur þráðlaus net eru í skólanum; eitt fyrir starfsfólk og annað fyrir gesti hússins.