Umsjón

 

Umsjón með nemendum

Í Menntaskóla Borgarfjarðar hafa nýnemar sérstakan umsjónarkennara. Umsjónarkennari veitir upplýsingar um áfangakerfið, námsframboð og þá þjónustu sem skólinn veitir. Hann aðstoðar nemendur við gerð námsáætlana og fylgist með ástundun þeirra og námsgengi.

Umsjónarfundir eru þrisvar til fjórum sinnum á önn, einu sinni í mánuði að meðaltali og er skyldumæting í þá.

Umsjónarfundir á vorönn 2013:

Fimmtudagur 21. febrúar – Mætingar, skólasóknarreglur, almennar skólareglur.

Fimmtudagur 4. apríl – Einstaklingsviðtöl og eftirfylgni með mætingum.

Fimmtudagur 16. maí – Einstaklingsviðtöl og eftirfylgni með mætingum. Námsáætlun.