Námið

Námsframboð Menntaskóla Borgarfjarðar námsárið 2010 – 2011 er eftirfarandi:
Almenn námsbraut
Þessi braut er tveggja ára námsbraut með möguleika fyrir nemendur að færa sig yfir á stúdentsbraut að loknu fyrsta námsári. Brautin er ætluð þeim sem ekki hafa náð tilskyldum námsárangri til að hefja nám á stúdentsprófsbraut og einnig þeim nemendum sem ekki hafa gert upp hug sinn með námsbraut.
Nám til stúdentsprófs í Menntaskóla Borgarfjarðar er að jafnaði 3 ár. Námstilhögun er með öðru sniði en almennt gerist í framhaldsskólum þar sem mikið er lagt upp úr sjálfstæðum vinnubrögðum og virkni í náminu. Annarpróf í desember og maí eru ekki til staðar, heldur er lögð rík áhersla á jafna vinnu nemenda allt skólaárið. Námsmat fer fram jafnt og þétt, sem gerir meiri kröfur til nemenda um vinnuframlag á öllum námstímanum s.k. leiðsagnarmat.
Starfsbraut er námstilboð fyrir nemendur sem ekki geta nýtt sér almennt tilboð framhaldsskóla. Námið er bæði bóklegt og verklegt. Meginmarkmið námsins er að gera nemendur virka þátttakendur í þjóðfélaginu og sjálfbjarga í daglegu lífi að því marki sem hverjum og einum er mögulegt.







No comments
Be the first one to leave a comment.