Félagsfræðabraut – íþróttafræðisvið
Á Félagsfræðabraut – íþróttasviði er megináherslan er á íþróttafræði, íþróttagreinar og þjálfun auk kjarna á félagsfræðabraut . Á félagsfræðibraut er lögð áhersla á nám til jafnréttis, lýðræðis og mannréttinda en íþróttsviðið leggur áherslu á heilbrigði og velferð. Um er að ræða 220 eininga nám til stúdentsprófs. Námstími að jafnaði er 6 annir. Félagsfræðabraut-íþróttasviði er ætlað að veita nemendum undirbúning undir leiðbeinendastörf hjá íþróttafélögum og frekara nám á háskólastigi í íþrótta- , kennslu- og heilsufræðum. Megináherslan er á íþróttafræði, íþróttagreinar og þjálfun auk kjarna á félagsfræðabraut.
Lokamarkmið félagsfræðabrautar með íþróttasviði:
Að nemandi
- hafi almenna færni og þekkingu á sviði félags-, mennta-, og hugvísindagreina
- sé vel undirbúinn undir nám á sviðum mennta-, og íþróttafræða í háskóla
- hafi almenna og sértæka færni og þekkingu á sviðum sál- og uppeldisfræða
- hafi fræðilegan og verklegan undirbúning í kennslu og þjálfun íþrótta og hreyfináms fyrir börn og unglinga
- sé meðvitaður um mikilvægi heilbrigðs lífernis
Mat Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands á námi í framhaldsskóla
Nemandi sem lokið hefur ÍÞF-102 (ÍÞF-1A06 í nýja einingakerfinu) og tveimur einingum í íþróttagrein (ÍÞG-1X2) getur fengið nám sitt metið sem þjálfari 1 hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands. Nemandi sem lokið hefur 26 einingum (42 í nýja einingakerfinu) í íþróttagreinum, íþróttafræðum og starfsþjálfun úr framhaldsskólum getur fengið almennan hluta af þjálfarastigi 2 metinn hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands.
Mat framhaldsskóla á námi frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands
Nemandi sem lokið hefur þjálfarastigi 1 hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands getur fengið nám sitt metið sem jafngildi ÍÞF-1A06 og ÍÞG-1X2.






